IS | EN | DE | PL
Forsíða :: Ráðgjöf  
Skjalaráðgjöf
Ráðgjafinn kemur til fyrirtækis/stofnunar og vinnur í nánu samstarfi með starfsfólki við upphaf innleiðingar á GoPro og aðstoðar við að stofna viðskiptavinaskrá, tengiliði og annað sem fylgir. Það gefur ráðgjafanum besta innsýn í starfsemi fyrirtækisins og auðveldar honum þar með að vinna úr þeim vandamálum sem hugsanlega gætu komið upp við innleiðinguna í góðu samstarfi við fólkið sem mun vinna með kerfið í framtíðinni. Slík vinna hjálpar ráðgjafanum einnig við undirbúning vegna gerðar geymslu- eða grisjunaráætlana ef um slíkt er að ræða.

Nánari upplýsingar um þessa þjónustu gefur Sölu-og markaðsdeild Hugvits í síma 510 3100, eða sala@hugvit.is

 

Prince2 ráðgjöf
PRINCE2 (Project IN Controlled Environments) er alþjóðlega viðurkennt verkefnis-stjórnunarkerfi sem veitir fyrirtækjum og stofnunum staðlaða og skipulega nálgun, við verkefnastjórnun. Kerfið var hannað af bresku tölvu- og fjarskiptastofnuninni CCTA, með tilliti til þarfa fjarskipta- og upplýsingatækni.

 

Í dag nota fjölmörg stórfyrirtæki og stofnanir í Bretlandi PRINCE2 við verkefnastjórnun. Ríkisstjórnir og fyrirtæki víða um heim hafa einnig tekið upp aðferðafræði PRINCE2 við verkefnastjórnun.
meira...

 

Til baka